Bylgjan er vinsælasta útvarpsstöð landsins. Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986 og er því komin á þrítugsaldurinn. Haldið er upp á afmælið Bylgjunnar á ári hverju með mismunandi hætti. Rúmlega 145.000 Íslendingar á aldrinum 12 til 80 ára stilla á Bylgjuna í hverri viku, sem gerir hana að vinsælustu útvarpsstöð landsins. Bylgjan sendir út allan sólarhringinn og einkenni stöðvarinnar er frábær tónlist og traustar fréttir á klukkutímafresti frá fréttastofu 365 miðla. Dagskrá Bylgjunnar má finna hér. Bylgjan hefur aðstetur í Skaftahlíðinni en dvaldi áður 5 ár að Lynghálsi 5 í Reykjavík þar sem hún kom sér fyrir vorið 2001 eftir stutta dvöl í Aðalstræti 6. Á upphafsárum Bylgjunnar var hún starfrækt við Snorrabraut í húsi kennt við Osta og Smjörsöluna. Einnig átti hún í stuttan tíma samastað í Sigtúni 7. Bylgjan er rekin af 365 miðlum ehf. 28. ágúst 1986 Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986 og er því komin á þrítugsaldurinn. Haldið er upp á afmælið Bylgjunnar á ári hverju með mismunandi hætti. Rúmlega 145.000 Íslendingar á aldrinum 12 til 80 ára stilla á Bylgjuna í hverri viku, sem gerir hana að vinsælustu útvarpsstöð landsins. http://www.bylgjan.is/ bylgjan@bylgjan.is
Категории новостей RSS-лентМой список RSS-лентСменить язык сайта и RSS-лентRSS: Скорость чтения 0100
RSS: Новости
Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu
visir.is Friday, 24 July 2026 04:35:27
Mótorhjólaslys átti sér stað í Kópavogi seint í kvöld og var ökumaður fluttur slasaður á bráðamóttöku með sjúkrabíl eftir að hafa flogið af hjólinu. Hann var með meðvitund en atvikið átti sér stað á veginum við Kópavogslæk í átt að Reykjavík.
Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“
visir.is Friday, 24 July 2026 04:30:46
Enski landsliðsmaðurinn Elliot Anderson segir að Manchester City sé aðalliðið í borginni en ekki Manchester United. Hann lét þessi ummæli falla í fyrsta viðtalinu sínu sem leikmaður City.
Verði að hætta að benda hver á annan
visir.is Friday, 24 July 2026 04:10:14
Verðbólga mælist 5,3 prósent og allt bendir til þess að verðbólguskilyrði kjarasamninga standist ekki í september. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að aðilar vinnumarkaðarins verði að hætta að benda hver á annan og taka höndum saman til að draga úr verðbólgu í landinu.
Eldur kviknaði á Fiskislóð
visir.is Friday, 24 July 2026 03:47:24
Eldur kviknaði í smáhýsi við Fiskislóð á Granda í Reykjavík í kvöld. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en smáhýsið, sem er á vegum Reykjavíkurborgar, er talið ónýtt. Ekki urðu slys á fólki.
Haaland dýrastur í sögu Fantasy
visir.is Friday, 24 July 2026 03:45:47
Norski framherjinn Erling Haaland hjá Manchester City er dýrasti leikmaður í sögu Fantasy-leiks ensku úrvalsdeildarinnar. Hann sló eigið met í leiknum.
Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi
visir.is Friday, 24 July 2026 03:27:15
Eftir fjóra sigra í röð gerði Grótta 3-3 jafntefli við FHL í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR hefði getað minnkað forskot Gróttu á toppnum en tapaði fyrir ÍA, 3-2. Völsungur vann langþráðan sigur og gott gengi Keflavíkur hélt áfram.
Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val
visir.is Friday, 24 July 2026 03:15:00
Valur vann í kvöld frækinn sigur gegn sterkum Bosnískum andstæðing, Zrinjski, í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Lokatölur 1-0 þar sem Tryggvi Hrafn skoraði eina mark leiksins með laglegu skoti rétt fyrir utan teig.
„Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“
visir.is Friday, 24 July 2026 03:07:44
Valur vann sinn fyrsta leik undir stjórn Chris Brazell sem aðalþjálfara, þegar liðið lagði Zrinjski að velli 1-0 að Hlíðarenda í kvöld. Að vonum var Brazell sáttur eftir leikinn.
Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina
visir.is Friday, 24 July 2026 03:05:55
Kona á rafhlaupahjóli sem fékk alvarlegt höfuðhögg og marðist illa í andliti vegna sandgryfju við gangbraut segist þakklát fyrir að vera á lífi. Ótrúlegt sé að ekki hafi verið brugðist við eftir að ítrekað var bent á lélegan frágang á svæðinu.
„Sigurinn nærir“
visir.is Friday, 24 July 2026 02:44:15
„Þetta var bara hörku leikur og við spiluðum bara eins og við erum búnir að vera að reyna að setja upp og það tókst í dag. Þetta var flottur sigur,“ sagði Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Vals, eftir flottan 1-0 sigur á Zrinjski að Hlíðarenda í kvöld. Skoraði Tryggvi Hrafn eina mark leiksins á 64. mínútu. Var þetta fyrri leikur liðanna í 2. umferð forkeppnar Sambandsdeildarinnar.
Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi
visir.is Friday, 24 July 2026 02:34:57
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út að skemmtiferðaskipi vegna farþega sem lenti í alvarlegu slysi. Hann var hífður upp í þyrlu skömmu fyrir klukkan ellefu í kvöld og fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri. Líðan hans er sögð stöðug. Skipið var skammt frá Húsavík.
„Margt jákvætt í leik okkar að þessu sinni“
visir.is Friday, 24 July 2026 02:25:03
Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunar var kampakátur með lið sitt þegar það lagði Ilves Tampere að velli með einu marki gegn engu í fyrri liðanna í annarri umferð í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld.
Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið
visir.is Friday, 24 July 2026 02:25:00
Þróttur fékk draumabyrjun gegn Leikni í Lengjudeild karla í kvöld og fylgdi því eftir og vann stórsigur, 1-5, í leik liðanna í Efra-Breiðholtinu. Með sigrinum komust Þróttarar upp í 2. sæti deildarinnar.
Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum
visir.is Friday, 24 July 2026 02:10:56
Olíuverð hefur tekið mikinn kipp upp á við á undanförnum dögum. Útlit er fyrir frekari hækkanir þar sem stríð Bandaríkjanna gegn Íran gæti stækkað að umfangi og ekkert útlit er fyrir að því ljúki í bráð.
Héldu út manni færri þar til átta mínútur voru eftir
visir.is Friday, 24 July 2026 01:52:16
NSÍ Runavík, sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrir, laut í lægra haldi fyrir Koper frá Slóveníu, 0-2, í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Færeyska liðið var manni færri í 54 mínútur.
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands
visir.is Friday, 24 July 2026 01:52:00
Stjarnan fór með 1-0 sigur af hólmi þegar liðið fékk finnska liðið Ilves Tampere í heimsókn á Samsung-völlinn í Garðabæinn í annarri umferð í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld.
Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu
visir.is Friday, 24 July 2026 01:14:05
Misjafnlega gekk hjá Íslendingaliðum á Norðurlöndunum í Evrópuleikjum þeirra í kvöld. Róbert Frosti Þorkelsson og félagar í GAIS mega vel við una eftir góðan sigur á Nordsjælland.
Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle
visir.is Friday, 24 July 2026 00:30:46
Englandsmeistarar Arsenal ætla að gera Newcastle United sjötíu milljóna punda tilboð í Bruno Guimaraes, fyrirliða liðsins.
„Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“
visir.is Friday, 24 July 2026 00:09:53
Utanríkisráðherra segir að ef hún ætti að elta allt sem ranglega væri haft eftir henni gerði hún lítið annað. Þess vegna hafi misskilningur í tveggja vikna gamalli frétt um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB ekki verið leiðréttur fyrr en í gær.
Kaupa Conteh frá Stjörnunni
visir.is Friday, 24 July 2026 00:01:23
Keflavík hefur keypt Alpha Conteh frá Stjörnunni. Hann hefur leikið sem lánsmaður með Keflvíkingum á þessu tímabili og látið mikið að sér kveða.
„Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“
visir.is Thursday, 23 July 2026 23:54:10
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kallar eftir skýrum svörum frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra varðandi samtöl hennar við Hollendinga um mögulega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli
visir.is Thursday, 23 July 2026 23:05:37
Í fréttum okkar í kvöld ræðum við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hvers vegna hvorki hún né ráðuneytið gerðu fyrr athugasemd við frétt þar sem sagt var að hún hefði rætt við Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands.
„Ótrúlega spennandi sóknarmaður“
visir.is Thursday, 23 July 2026 22:45:45
Santa Sanija Vuskane átti algjöra draumainnkomu í íslenska boltann og heillaði sérfræðinga Bestu markanna mikið.
Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða
visir.is Thursday, 23 July 2026 22:40:10
Matvælastofnun (MAST) telur nauðsynlegt að bregðast við og koma á framfæri skýringum vegna meintra annmarka á skráningu eftirlitsgagna vegna hvalveiða. Vísir birti fyrr í dag frétt upp úr yfirlýsingu Hvalavina, samtaka sem berjast gegn hvalveiðum.
Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola
visir.is Thursday, 23 July 2026 22:17:47
Pep Guardiola virðist ætla að neita tilboði ítalska knattspyrnusambandsins um að gerast þjálfari ítalska landsliðsins. Peningakröfur Guardiola hafa verið of miklar fyrir ítalska sambandið.
Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ?
visir.is Thursday, 23 July 2026 22:01:18
Sýnið okkur samninginn! Við lifum í landi þar sem leikreglurnar eru hannaðar fyrir fáeina útvalda en fátæktargildrurnar fyrir okkur hin. Sem venjulegur launamaður og neytandi á Íslandi fylgist ég með umræðunni um Evrópusambandið og nýjan gjaldmiðil með vaxandi undrun. Hræðsluáróðurinn sem dælt er yfir okkur daglega er orðinn hjákátlegur. Okkur er sagt að við eigum ekki einu sinni að skoða hvað er í boði. Að við eigum að segja nei í blindni.
Modric tekur slaginn áfram í Mílanó
visir.is Thursday, 23 July 2026 21:39:50
Luka Modric ætlar ekki að leggja skóna upp á hillu alveg strax og hefur framlengt samning sinn við ítalska knattspyrnufélagið AC Milan um eitt ár til viðbótar.
Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“
visir.is Thursday, 23 July 2026 21:37:46
Mágkonurnar fyrrverandi Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Inga Auðbjörg Straumland hafa sett íbúðir sína á sölu í þeim tilgangi að fjármagna kaup á „draumakommúnu“. Þar ætla þær að búa saman ásamt sonum sínum, sem eru frændur.
Leikvangur með gagnsætt þak og yfir tuttugu þúsund bílastæði
visir.is Thursday, 23 July 2026 21:31:46
NFL-félagið Kansas City Chiefs er að fara að byggja nýjan leikvang í öðru fylki og hefur nú frumsýnt myndir af væntanlegum leikvangi sem mun kosta þrjá milljarða dollara eða 378 milljarða í íslenskum krónum.
Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar
visir.is Thursday, 23 July 2026 21:31:08
Mikil umræða hefur farið fram um skýr svör hollenska forsætisráðherrans Rob Jettens í hollenska þinginu þar sem hann tók af öll tvímæli um að Ísland þyrfti, eins og önnur ríki sem vilja verða aðilar að ESB, að undirgangast sameiginlega stefnu sambandsins í sjávarútvegsmálum.
Hart tekist á um ESB
visir.is Thursday, 23 July 2026 21:26:18
Eins og lýðum má ljóst vera ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni geta komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður sé að ræða.
Er kominn tími á „Íslenska landklasann“?
visir.is Thursday, 23 July 2026 21:00:43
Hvernig getum við skapað meiri verðmæti úr landi Íslands? Í síðustu grein minni um framtíð íslensks landbúnaðar velti ég upp þeirri spurningu hvernig við getum þróað íslenskan landbúnað áfram – án þess að glata þeim verðmætum sem hann byggir á.
Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:45:45
RFS vann öruggan 4-1 sigur á Vestra í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í Riga í dag. Liðin mætast aftur eftir viku en ljóst er að Vestri þarf kraftaverk til þess að komast áfram.
Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:42:11
Rapparinn Daniil hefur nú gefið út nýtt lag ásamt bandaríska tónlistarmanninum Kodak Black en hann segir útgáfuna hafa komið honum í opna skjöldu. Sá síðarnefndi hefur verið gríðarlega vinsæll síðasta áratuginn og um þrjátíu milljónir manns hlusta á lögin hans í hverjum mánuði. Hann hefur unnið að lögum ásamt Bruno Mars, Travis Scott, Gucci Mane og Future svo dæmi séu tekin.
„Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:32:51
Herbert Hainer, forseti Bayern München, er ánægður með plön þýska sambandsins því hann telur Jürgen Klopp vera rétta manninn fyrir karlalandslið Þýskalands í fótbolta.
Um hvað er hægt að semja?
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:32:49
Hingað til hefur umræðan um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu snúist um allt annað en það sem kosið verður um í ágúst. Moldviðri um við hvern Þorgerður Katrín á að hafa ekki talað við, eins og það skipti nokkru máli um atkvæðagreiðsluna sem er fram undan og lauk endanlega í gær með leiðréttingu frá fréttastofu Vísis. Þetta heitir í daglegu tali vanstilling hjá nei-sinnum og hefur einkennt þá herferð hingað til.
Arnór í leyfi frá störfum
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:20:49
Arnór Smárason er kominn í ótímabundið leyfi frá störfum hjá sænska knattspyrnufélaginu Hammarby af persónulegum ástæðum.
Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:02:12
Donald Trump segir að samkomulag sem skrifað var undir í gær milli Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu, um að koma upp kjarnorku í síðarnefnda ríkinu, feli í sér að Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael. Þar að auki verði þeir að opna formlega á pólitísk samskipti ríkjanna á milli, með því að verða aðilar að Abraham-sáttmálunum svokölluðu.
Sumarið, samveran og samspil taugakerfa
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:01:58
Nú þegar flestir eru í sumarfríi og margir verja meiri tíma en ella með fjölskyldu, börnum, barnabörnum, ömmum, öfum og vinum, upplifa margir einn af hápunktum ársins. Sameiginlegar ferðir, grillkvöld, útivist og rólegar stundir geta skapað minningar sem endast ævina.
Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum
visir.is Thursday, 23 July 2026 20:01:46
Álftnesingar hafa nú samið við fjóra leikmenn sem í fyrra fóru allir í undanúrslitin með öðrum liðum í Bónus-deildinni.
Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:51:34
Leikarinn Jason Alexander, þekktastur fyrir leik sinn í Seinfeld, hefur beðið raunveruleikastjörnuna Courtney Stodden opinberlega afsökunar vegna óviðeigandi skets sem þau tóku upp saman þegar hún var sautján ára. Stodden varð heimsfræg sextán ára gömul þegar hún giftist 51 árs gamla leikaranum Doug Hutchison og berst í dag fyrir því að lágmarksgiftingaraldur verði hækkaður í átján ár í Kaliforníu.
KR sækir sænskan landsliðsmann
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:51:32
Adam Ramstedt, sænskur landsliðsmaður í körfubolta, hefur gengið í raðir KR. Hann hefur áður leikið á Íslandi en hann spilaði með Val í eitt ár.
Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:49:41
Tveir breskir ríkisborgarar hafa verið dæmdir í sex ára fangelsi fyrir umfangsmikinn innflutning á amfetamíni. Bæði voru burðardýr sem gerð voru út af örkinni af óþekktum aðila sem kallaði sig Stúart litla (e. Stuart Little) eftir þekktri teiknimyndapersónu.
Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:42:22
Aston Villa hefur fengið argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho að láni frá Chelsea, gengið verður svo frá kaupum næsta sumar til að komast fram hjá fjárhagsreglum.
Laun hækka umfram verðbólgu
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:36:23
Hagstofan hefur birt tölur fyrir júnímánuð og hækkaði launavísitala um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Greint var frá því fyrr í morgun að verðbólga hækki milli mánaða en hún mælist nú 5,3 prósent á ársgrundvelli.
Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:32:44
Það er eitthvað næstum því samúðarvert við að fylgjast með ritstjórn Morgunblaðsins og varðhundum hins gamla valds á Íslandi um þessar mundir. Í áratugi var uppskriftin einföld: Mogginn deildi út einkunnunum, stýrði umræðunni um stóru utanríkismálin og setti rammann utan um það hvað teldist ábyrg stjórnsýsla og hvað ekki. En nú er eins og tölvukerfið á Hádegismóum hafi fengið alvarlega kerfisvillu. Ástæðan er einföld, tæpitungulaus og gengur undir nafninu Kristrún Frostadóttir.
Bíp... bíp... bíp…
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:02:55
Hvað ef stærsta verkefnið fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sé ekki að finna rétta svarið… heldur réttu spurninguna? Ég er eiginlega farinn að halda að ég sé kominn með atvinnusjúkdóm.
Króna eða evra?
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:02:54
Tilgangur peninga er þríþættur. Peningar eru greiðslumiðill til að verðleggja og kaupa og selja vörur og þjónustu. Peningar eru notaðir sem mælieining verðmæta t.d. í staðinn fyrir kúgildi og ullarlagða eða aðrar mælieiningar sem áður tíðkuðust. Þriðji tilgangur peninga er að geyma verðmæti til seinni nota. Íslensk króna hefur nýst sem greiðslumiðill við kaup og sölu og einnig sem stundleg mælieining verðmæta. Þetta hefur hún gert þrátt fyrir dýrtíð og stöðuga rýrnun gagnvart flestum öðrum gjaldmiðlum. En sem leið til að geyma verðmæti, t.d. innlegg í banka eða sem fjárskuldbinding, þá hefur hún ekki dugað sem skyldi.
Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs
visir.is Thursday, 23 July 2026 19:02:42
Víkingurinn Þorri Ingólfsson er genginn til liðs við Þór Akureyri og mun leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils í Bestu deild karla í fótbolta.
Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:36:28
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu vegna brotahrinu síðan í febrúar, þegar honum var sleppt úr fangelsi eftir afplánun. Daginn áður en úrskurður var kveðinn upp var honum sleppt úr haldi lögreglu en gripinn á vettvangi innbrots með þýfi í fórum sínum skömmu seinna.
Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:31:43
Ólögleg sala lyfja, sérstaklega í gegnum netið, virðist sífellt aukast og haldast í hendur við mikla og vaxandi eftirspurn. Henni er svarað af óprúttnum aðilum sem svífast einskis, en ljóst er að framleiðsla ólöglegra lyfja er vaxandi vandamál víða um heim.
Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:31:42
Fernando Alonso er að íhuga framtíð sína í Formúlu 1 en hann er elsti ökumaður sem keppir þar. Spánverjinn er orðinn 44 ára og er að keppa á sínu 24. tímabili í Formúlu 1.
Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:30:19
Starfsmaður vínbúðar í Rajasthan á Indlandi slapp naumlega undan hlébarða sem réðst á hann inni í versluninni á mánudaginn. Hlébarðinn réðst fyrst á mann fyrir utan verslunina en þegar starfsmaðurinn heyrði lætin og kíkti fyrir horn hljóp hlébarðinn þar inn, stökk yfir afgreiðsluborðið og réðst á starfsmanninn.
Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:28:50
„Ef markmiðið með forsenduákvæðinu var að tryggja kaupmátt þá held ég að allt bendi til þess að það hafi gengið eftir,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:15:59
Englandsmeistarar Arsenal hafa samið við vængmanninn Christos Tzolis sem kemur til félagsins frá Club Brugge.
Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:13:49
Auðkýfingurinn Elon Musk hefur ítrekað gagnrýnt leikstjórann Christopher Nolan síðustu mánuði vegna ráðningar hans á hörundsdökkum leikurum og trans manni í Ódysseifskviðu. Nú hefur Musk lýst því yfir að gervigreindararlíkan hans, Grok Imagine, muni ljúka við „sögulega nákvæmari“ aðlögun á Ódysseifskviðu fyrir árslok.
Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:01:56
Á meðan Ítalir hafa ekki tekið þátt í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins undanfarin tólf ár þá eru nágrannar þeirra frá Spáni nýkrýndir heimsmeistarar og handhafar allra stóru titla karlafótboltans. Forseti eins af stóru ítölsku félögunum vill að ítalski fótboltinn horfi til Spánar þegar menn endurskipuleggja sig eftir vonbrigði síðustu ára.
Hvað er samfélagsmiðill?
visir.is Thursday, 23 July 2026 18:01:44
Eins og mörgum er kunnugt hefur mennta- og barnamálaráðuneytið kynnt áform um frumvarp til laga um aldursmörk fyrir aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Samkvæmt tillögunum eiga börn ekki að fá aðgang að samfélagsmiðlum fyrr en 1. janúar það ár sem þau verða 15 ára.
Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:54:26
Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran.
Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:42:56
Fjármálaráðherra segir það góðar fréttir að innlend verðbólga sé á undanhaldi, þótt það séu slæmar fréttir að verðbólga aukist. Forseti ASÍ segir það svo gott sem klárt mál að verðbólguviðmið kjarasamninga náist ekki í haust. Ráðherra segir að þrátt fyrir að verðbólguviðmiðið muni líklegast ekki standast hafi kaupmáttur haldist við.
Fyrrum UFC-meistari vinnur fyrir sér sem sendill
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:30:45
Jessica Andrade er fyrrverandi UFC-meistari í fluguvigt en hún segist hafa unnið sem sendill til að afla sér aukatekna á meðan hún jafnar sig eftir meiðsli.
Stöðugleiki í heljargreipum
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:30:43
Stöðugleiki er eitt mest notaða orðið í umræðunni um gjaldmiðlamál. Sjaldnar er hins vegar spurt hvað átt sé við. Felst stöðugleiki fyrst og fremst í föstu gengi gjaldmiðils (miðað við aðra gjaldmiðla) eða í því að hagkerfið geti tekist á við áföll án langvarandi samdráttar?
Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:30:15
Druslugangan hefst í fjórtánda skiptið klukkan 14:00 á laugardaginn en einn skipuleggjenda segir sjaldan, ef nokkurn tímann, hafa verið þarfara að ganga en nú. Í göngunni geti fólk komið saman og skilað skömminni, fengið útrás og fundið fyrir stuðningi í hópi fólks sem trúir því. Öllum sé boðið að ganga með, ekki bara þolendum kynferðisofbeldis.
Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:00:45
Vel hefur tekist að bregðast við fjölda innbrota í miðborg Reykjavíkur í þessum mánuði að sögn lögreglu en þrír hafa verið handteknir vegna innbrotanna. Borgarstjóri fundaði í gær með lögreglu vegna málsins auk íbúasamtökum og hyggst kynna aðgerðir á næstu dögum.
Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:00:44
Umtalaðasta blaðagrein um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst er eftir eitt höfuðskáld þjóðarinnar, Hannes Pétursson. Greinin birtist 23. júní og þar er klykkt út með þessum orðum:
Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína
visir.is Thursday, 23 July 2026 17:00:31
Air China hefur hafið sölu á flugferðum frá Keflavík til Peking, höfuðborgar Kína. Jómfrúarflugið verður 26. október næstkomandi en Air China er eitt stærsta flugfélag heims og ríkisflugfélag Kína.
Barcelona kaupir Adeyemi
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:51:59
Barcelona hefur fest kaup á þýska framherjanum Karim Adeyemi frá Borussia Dortmund fyrir 22 milljónir evra.
Starbucks kemur í stað Kaffitárs
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:42:03
Kaffihúsakeðjan Starbucks mun opna nýtt útibú í Kringlunni þar sem Kaffitár var áður til húsa. Nýja verslunin mun opna í september.
Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:38:09
Verðbólgan eykst enn og forseti ASÍ segir það svo gott sem klárt mál að markmið kjarasamninga náist ekki í haust.
Arsenal án lykilmanns í marga mánuði
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:32:45
Englandsmeistarar Arsenal þurfa að fara inn í titilvörnina án eins síns traustasta varnarmanns.
Það sem gögnin fundu ekki
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:32:44
Hið þvælda hugtak „gróðaverðbólga“ hefur nú verið dregið upp úr skúffunni á ný. Að þessu sinni er því fléttað inn í þá frásögn að íslenska hagkerfið sé svo gallað að eina bjargráðið sé innganga í Evrópusambandið.
„Nú verða allir að líta í eigin barm“
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:31:04
Formaður Starfsgreinasambandsins segir baráttuna við verðbólguna vera á kolrangri leið, enda haldi verðbólga áfram að aukast. 100 prósent líkur séu á að forsendur kjarasamninga muni bresta í ágústmælingu verðbólgu.
Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:19:14
Neyðarlínan hefur kynnt varanúmerið 599-0112 ef ekki næst í 112. Vakin er athygli á því í tilkynningu að símtöl í þetta númer séu höndluð sem almenn símtöl og njóti ekki sama forgangs og ef hringt sé beint í 112. Því sé mikilvægt að hringja enn fyrst í 112.
„La La Höndin“ úr sögunni
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:18:03
Í tilefni tíu ára útgáfuafmælis kvikmyndarinnar La La Land hefur plakati myndarinnar loks verið breytt. Ryan Gosling, einn aðalleikari myndarinnar, segist hafa haldið að hann væri töff.
Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:09:44
Búast má við hvassri vestan- og norðvestanátt við Vatnajökul í dag, frá Skaftafelli og austur að Höfn í Hornafirði.
Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:00:48
Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður Vals, fagnar því að vera kominn á fullt með liðinu eftir erfið ökklameiðsli. Hann glímir í raun enn við meiðslin en lætur það ekki á sig fá. Hann stefnir á að spila alla leiki sem eftir eru.
Eru Íslendingar afglapar í samningatækni?
visir.is Thursday, 23 July 2026 16:00:47
Það er með miklum ólíkindum að vera Íslendingur þessa dagana. Hver um annan þveran keppast þeir við að lýsa getuleysi okkar og aumingjaskap. Nei-sinnarnir. Það telja þeir að sé vænlegast til sigurs.
Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:58:45
Vestramenn eru mættir til Lettlands, Valsmenn taka á móti Blikabönum frá Bosníu og Stjarnan tekur nýflengd á móti liði frá Finnlandi í Evrópueinvígum dagsins.
Pallborðið: Nei eða já?
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:55:09
Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi, til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eiga að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ljóst er að málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni getað komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður er að ræða. Mál málanna verður krufið í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.
Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:55:08
Hvalavinir segja eftirlitsskýrslur Matvælastofnunar (MAST) vegna hvalveiða sýna að langdregin dauðastríð dýranna séu enn algeng. Þá séu annmarkar á skráningu eftirlitsgagna. Opinberar skýrslur séu aðeins tuttugu og ein á meðan veidd dýr séu tuttugu og fjögur.
Kvennatennisinn tekur upp kynjapróf fyrir alla leikmenn
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:31:43
Bestu kvenkyns tennisleikarar heims verða framvegis að sanna að þeir séu konur til að fá að keppa á WTA-mótaröðinni.
Baldur snýr heim á Breiðafjörð
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:31:42
Viðgerð á mótor Herjólfs IV er lokið og ferjan siglir á ný á báðum mótorum milli lands og Eyja. Baldur heldur því heim og hefur áætlunarsiglingar á Breiðafirði að nýju.
Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:26:57
Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu.
Ali G snýr aftur
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:13:21
Gervitöffarinn Ali G sem varð frægur um aldamótin snýr aftur í framhaldsmyndinni Ali G: Who Iz I? í oktber. Fyrri myndin, Ali G In Da House, kom út 2002 og var fyrsta stóra kvikmyndahlutverk Sacha Barons Cohen.
Leggur til breytingar á útivistartíma barna
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:07:22
Mennta- og barnamálaráðherra hyggst lengja útivistartíma tíu til tólf ára barna um eina klukkustund yfir vetrartímann. Þá verður útvistartíminn á sumrin í gildi í skemmri tíma.
Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:01:44
„Við erum mjög spenntir og vel undirbúnir. Við hlökkum til að takast á við þetta verkefni,“ segir Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar, um leik hans manna við Ilves frá Finnlandi í Sambansdeild Evrópu í kvöld.
Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum
visir.is Thursday, 23 July 2026 15:00:05
Ólögleg peptíð sem tollgæslan gerði upptæk úr póstsendingum reyndust innihalda lítið af virkum lyfjaefnum. Mikil óhreinindi reyndust í peptíðunum.
Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn
visir.is Thursday, 23 July 2026 14:43:43
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson mun spila með nýkrýndum heimsmeistara á komandi tímabili því fyrirliði hans hjá Real Sociedad varð um helgina heimsmeistari með spænska landsliðinu.
Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham
visir.is Thursday, 23 July 2026 14:20:47
Tottenham vann 1-0 sigur á Milton Keynes Dons í æfingaleik í gær en sigurmarkið var alvöru innkoma hjá nýjum leikmanni liðsins.
Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu
visir.is Thursday, 23 July 2026 14:12:13
Formaður Sjálfstæðisflokksins segist mjög sátt með þróun fylgis flokksins sem mældist með mesta fylgið í nýrri skoðanakönnun. Aukið fylgi stafi bæði af óvinsældum ríkisstjórnarinnar og samtakamætti Sjálfstæðisflokksins. Flokksmenn sem hurfu annað séu að snúa aftur.
„Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“
visir.is Thursday, 23 July 2026 14:02:51
„Það er alltaf gaman að spila í Evrópu og fá öðruvísi mótherja. Við erum að mæta góðu liði svo við þurfum að vera á tánum og nýta okkar möguleika hérna heima,“ segir Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, um leik kvöldsins við Zrinjski Mostar í Sambandsdeild Evrópu.
Verðbólga eykst enn
visir.is Thursday, 23 July 2026 14:02:45
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36 prósent á milli mánaða og er 693,2 stig. Ársverðbólga mælist nú 5,3 prósent, 0,1 stigi meiri en í síðasta mánuði.
Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:50:54
Vefsíða austfirska fjölmiðilsins Austurfrétt liggur niðri eftir netárás. Enginn gagnaleki virðist hafa orðið.
The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:46:59
Norska knattspyrnusambandið ætlar að senda inn kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, eftir að hann blandaði sér í niðurfellingu á leikbanni Folarin Balogun, að því er The Times greinir frá.
Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:31:53
Lagaprófessor segir að þegar lögum um Landlækni og lýðheilsu hafi verið breytt árið 2023 hafi sérstaklega verið fjallað um það að það að svipta lækna starfsleyfi sé ekki álitið refsing. Þess í stað væri markmiðið aðvörun eða endurhæfing. Breytingin hafi þó verið gerð eftir meint brot Skúla Tómas Gunnlaugssonar.
Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:30:46
Heimsleikarnir í CrossFit byrjuðu með sögulegri niðurstöðu í fyrstu greininni í gær. Hvað var sögulegt? Jú, sigurvegararnir eru að fara að gifta sig.
NATO 3.0 kallar á nýtt varnarsamstarf í Evrópu á grunni JEF
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:19:22
Sú staðreynd að hugmyndin um NATO 3.0 er nú sett fram ætti að vera Evrópubúum skýr vísbending um að hagsmunir Bandaríkjanna af öryggi Evrópu hafi tekið verulegum breytingum.
„Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:15:08
Dálítil væta verður framan af degi en léttir þegar líður á daginn. Það gæti sést til sólar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Hiti tíu til tuttugu stig, hlýjast fyrir austan.
Drægnitölurnar komu út í plús
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:00:58
Smárafbíllinn Hyundai Inster er dálítið fyndinn, kubbslegur og stuttur, eins og hann hafi keyrt út úr teiknimynd eða tölvuleik og skoppað út á götu. Pixel ljósin ýta undir tölvuleikjalúkkið og hringlaga dagljósin eru eins og galopin augu. Mér finnst hann varla vera fullorðins bíll svona appelsínugulur og stubbalegur. En, áður en við dæmum hann eftir útlitinu er rétt að líta aðeins yfir ferilskrána.
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:00:56
Fram til þessa hefur 44 kaupsamningum verið þinglýst þar sem notað er svokallað sameignarfyrirkomulag. Fyrirkomulagið hafur nú verið til staðar í tíu mánuði en HMS segir að útbreiðsla þess sé enn takmörkuð. Sjóðir sem buðu upp á slíkt sameignarfyrirkomulag spruttu upp eins og gorkúlur síðasta haust og báru heiti eins og SAFÍR20, REIR20, Kauplykill og ÞG Sjóður.
Er nýi Haaland íslenskur?
visir.is Thursday, 23 July 2026 13:00:44
Bjarki Hrafn Garðarsson er án efa einn efnilegasti knattspyrnumaður Íslands enda nýbúinn að gera samning við þýska stórliðið Borussia Dortmund.
Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð?
visir.is Thursday, 23 July 2026 12:40:11
Við segjum gjarnan að öryggi sé í forgangi. Sú yfirlýsing kemur fram í stefnum fyrirtækja, verklagsreglum og kynningum fyrir starfsfólk. Raunveruleg forgangsröðun kemur þó ekki í ljós á öryggisfundinum, heldur þegar verkið er komið á eftir áætlun, kostnaðurinn hækkar og einhver þarf að taka ákvörðun um hvort stöðva eigi vinnu.
Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni
visir.is Thursday, 23 July 2026 12:31:48
Lionel Messi var ekki valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins, sem hneykslaði marga knattspyrnuspekinga, enda fór hann fyrir argentínska landsliðinu á mótinu og var efstur í afar mörgum mikilvægum tölfræðiþáttum hjá liðinu.
Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu
visir.is Thursday, 23 July 2026 12:18:27
Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað.
Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel
visir.is Thursday, 23 July 2026 12:03:03
Úlfar Þormóðsson rithöfundur greindist nýverið með flöguþekjukrabbamein. Hann er dauðvona. Úlfar getur nú sagt hvað sem honum sýnist því hann verður ekki látinn standa reikningsskil þess vegna. En hann hefur reyndar aldrei óttast að segja það sem honum býr í brjósti.
Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar
visir.is Thursday, 23 July 2026 12:03:01
Fabian Ruiz og Gavi, leikmenn spænska landsliðsins, fengu höfðinglegar móttökur þegar þeir komu til baka í heimabæinn sinn Los Palacios y Villafranca. Þeir fengu þyngd sína í tómötum við heimkomuna.
Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs
visir.is Thursday, 23 July 2026 12:02:48
The Odyssey eftir Christopher Nolan er epísk þriggja tíma ævintýraferð um Miðjarðarhafið þar sem Ódysseifur tekst á við reiði guðanna og ógnvænleg skrímsli en líka eigin sektarkennd. Sjónarspil, hasar og Hollywood-stjörnur ráða för þó Nolan setji sitt eigið handbragð á söguna með nútímalegri, ögn náttúrulausri og kristinni nálgun.
Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga
visir.is Thursday, 23 July 2026 11:52:20
Ódýrari íbúðir eru nú mun hærra hlutfall af heildarfjölda seldra íbúða en áður. Á undanförnum tólf mánuðum hefur kaupverð verið undir 80 milljónum í að meðaltali um 60 prósent kaupsamninga en hlutfallið var 46 prósent árið 2020.
Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax
visir.is Thursday, 23 July 2026 11:34:02
Veggmynd sem listamaðurinn Tvboy málaði í Barselóna til heiðurs Ferran Torres eftir sigur Spánar á heimsmeistaramótinu var skemmd með veggjakroti.
Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“
visir.is Thursday, 23 July 2026 11:32:23
„Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um eitt: Viljum við að Ísland setjist við samningaborðið og freisti þess að ná eins hagfelldum samningi og völ er á, með þessi markmið að leiðarljósi? Verði svarið já opnum við á tækifæri. Með því að segja nei lokum við þessum dyrum. Í báðum tilvikum er það þjóðin sjálf sem ræður. Það er kjarni málsins, og hann breytist ekki þótt reynt sé að flækja hann.“
Aðildarviðræður eru samningaviðræður
visir.is Thursday, 23 July 2026 11:18:20
Þann 29. ágúst gengur íslenska þjóðin að kjörborðinu og svarar einni spurningu: Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Hér er ekki spurt hvort þjóðin eigi að ganga inn, heldur hvort við eigum að ganga til samningaviðræðna. Sú ákvörðun verður ekki tekin fyrr en þjóðin hefur séð fullbúinn samning og fengið tækifæri til að greiða atkvæði um hann sérstaklega, í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppnum
visir.is Thursday, 23 July 2026 11:01:48
Nóg er um að vera þennan fallega fimmtudag þar sem bæði golf og fótbolti er á dagskrá í dag.
Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn
visir.is Thursday, 23 July 2026 10:20:00
Bergrós Björnsdóttir stóð sig vel á afar krefjandi fyrsta degi á heimsleikunum í CrossFit en keppnin hófst með sjö greinum í gær.
Stúlkan fannst heil á húfi
visir.is Thursday, 23 July 2026 06:09:19
Stúlka, sem björgunarsveitir og lögreglan á Norðurlandi eystra leitaði að á miðvikudagskvöld við Akureyri er komin í leitirnar.
Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári
visir.is Thursday, 23 July 2026 05:09:46
Réttarhöld yfir Nicolási Maduro, fyrrverandi forseta Venesúela, og eiginkonu hans, Ciliu Flores, hefjast 1. júní 2027, að því er dómari í New York úrskurðaði fyrr í dag.